Tól og æfingar
Á meðal möguleikanna til að auka orðaforða sinn í sjálfsnámi er greinarmunur á æfingum og tólum.
Æfingar eru skipuleg leið til að læra eða æfa orð, til dæmis með því að horfa á fréttir með skjátexta, fletta upp óþekktum orðum og horfa síðan aftur á fréttirnar án texta: Námsmaðurinn mótar meðvitað námsleið til að finna ný orð og æfa þau.
Tól geta annað hvort verið stafræn (t.d. orðaforðatólið www.wrts.com eða quizlet) eða ekki stafræn (t.d. orðaspjöld, límmiðar eða orðaglósur). Sum eru alveg sjálfstæð en með öðrum þarf að nota æfingar eða þau krefjast vissrar námsaðferðar af námsmanninum. En hvaða æfingar og tól henta þá hvaða námsmanni? Ef við viljum þjálfa nemendur okkar í að læra sjálfstætt, ættum við að geta stungið upp á tólum og æfingum sem henta þörfum þeirra.
Til að hjálpa kennurum að gera það höfum við hannað tvö flokkunartól. Hvert þátttökuland í þessu verkefni notaði flokkunartólin til að flokka fjölda tóla og æfinga.
Fyrsta flokkunartól: þarfir nemenda
Fyrsta flokkunartólið fer yfir nytsamlegri eiginleika tólsins eða æfingarinnar. Það veitir upplýsingar sem tengjast ýmsum kröfum námsmannsins, t.d. hvort tólið sé ókeypis, hvort það sé aðeins fyrir eitt erfiðleikastig, hvort það sé til að læra ný orð eða frekar til að æfa orð… Fyrir neðan sérðu dæmi um æfingar og tól með merkingum þeirra samkvæmt kröfum námsmannsins. Efst eru æfingar og tól sem henta fyrir orðaforða í hvaða tungumáli sem er. Æfingar og tól fyrir ákveðið tungumál eru flokkuð eftir því tungumáli sem þau eru ætluð.
Seinna flokkunartól: merkingar
Eftir að hafa valið tól eftir hagnýtum atriðum er einnig þess virði að velta fyrir sér gæðum þessara æfinga og tóla: er auðvelt að nota þau, er boðið upp á aðstoð eða endurgjöf, getur námsmaðurinn bætt sínum eigin orðum við? Niðurstöðurnar úr seinni flokkuninni er fjöldi merkinga fyrir hvert tól eða æfinga. Hægt er að finna þær í sérskjali, sem opnast þegar smellt er á tengilinn með nafni æfingarinnar eða tólsins.
Hvernig eru þessar merkingar?
Flokkunin og merkingarnar veita þér nytsamlegar upplýsingar um tólin og æfingarnar. En þetta er aðeins hluti af því sem kennari getur gert til að leiðbeina nemendum sínum í því sjálfstæðu orðaforðanámi. Áður en þú stingur upp á tólum eða æfingum er gott að athuga hvað hver nemandi þarfnast, gera þarfagreiningu og velta fyrir sér endurgjöf og hvatningu. Ef þú hefur áhuga á að vita hvernig á að nota þessar merkingar í kennslu skaltu fara fyrst í kaflann Get Started.
Merkingarnar
Jæja, þetta eru merkingarnar okkar.
Ef þú vilt flokka tól eða æfingu eða ef þú vilt nota merkingarnar sem grunn fyrir þarfagreiningu með nemendum þínum skaltu smella á eftirfarandi tengla til að opna skjalasniðin:
- Template screening instrument 1 with learner variables
- Template screening instrument 2 with quality labels
Ef þú vilt skoða tólin og æfingarnar sem við flokkuðum geturðu smellt á einn af eftirfarandi tenglum:
- Survey of the labeled tools organised per country
- Survey of the labeled tools, organised per target language
template_learner_variables.docx | |
File Size: | 205 kb |
File Type: | docx |
template_quality_labels.docx | |
File Size: | 326 kb |
File Type: | docx |
survey_of_labeled_tools_per_country.docx | |
File Size: | 214 kb |
File Type: | docx |
survey_of_labeled_tools_per_language.docx | |
File Size: | 214 kb |
File Type: | docx |
Download screening folders (backup)
Flokkunin okkar er geymd í Google möppu. Þannig getum við tengt hvert tól við nákvæmari flokkun þess. En þú þarft samt að skrá þig inn á Google aðgang þinn til að geta séð nákvæma flokkun viðkomandi tóls eða æfingar. Ef þú ert ekki með Google aðgang geturðu hlaðið niður möppunum með flokkuninni hér.
austria.zip | |
File Size: | 699 kb |
File Type: | zip |
belgium.zip | |
File Size: | 3786 kb |
File Type: | zip |
iceland.zip | |
File Size: | 908 kb |
File Type: | zip |
poland.zip | |
File Size: | 1915 kb |
File Type: | zip |
sweden.zip | |
File Size: | 47 kb |
File Type: | zip |
the_netherlands_1.zip | |
File Size: | 8180 kb |
File Type: | zip |
the_netherlands_2.zip | |
File Size: | 5453 kb |
File Type: | zip |